Fara í efni  

Keramik platinum lakkvernd

Platinum lakkvernd

GTECHNIQ Platinum húðunarmeðferð fyrir vörubíla verndar lakkið fyrir óblíðri náttúru Íslands og auðveldar öll þrif á bílnum milli ferða, tryggir að bíllinn verður alltaf gljáandi fínn og lækkar rekstrarkostnaðinn.

Ceramic GTECHNIC Platinum lakkvernd hjá Velti

GTECHNIQ Platinum meðferðin er mjög umfangsmikil þar sem lakk og króm er húðað ásamt rúðum, álfelgum, plasti og innréttingu. Reynslumiklir menn, góð efni og framúrskarandi aðstaða á Hádegismóum gerir meðferðina einstaklega vandaða og hagkvæma.
 
Keramik meðferðin verndar lakkið og krómið fyrir óblíðri náttúru Íslands, auðveldar öll þrif á bílnum milli ferða, tryggir að bíllinn er alltaf gljáandi finn og lækkar rekstrarkostnaðinn.
 
Í GTECHNIQ Platinum er Crystal Ceramic húðun sem í felst að lakkið er húðað með öflugu efni byggt á nanó tækni sem eykur gljáa og styrkir glæruna. Krómið er líka húðað. Álfelgur fá sérstaka meðhöndlun, plast á bílnum einnig ásamt því að rúður og annað gler er sérstaklega varið. Að auki er innrétting meðhöndluð með efnum sem hrinda frá sér óhreinindum og drepa sýkla.
 
GTECHNIQ Crystal Ceramic lakk- og króm húðunin endist í 5 ár með reglulegu viðhaldi. Crystal Ceramic lakk- og krómhúðun myndar einstaklega endingargott, háglans, silkimjúkt lag á lakk bílsins og krómaða hluti og bindur sig við yfirborð bílsins og getur orðið allt að fimm sinnum harðara en fyrir. Húðunin þolir miklar hitabreytingar eða allt frá +250° og niður í -40°.
 
Húðunin er byggð á nanó tækni sem bindur sig við yfirborð bílsins og myndar sterka vörn sem er margfalt harðari en lakk bílsins og er því frábrugðin hefðbundnum bón og vax vörum sem setjast ofan á lakk bílsins og veita því einungis skammtíma vörn. GTECHNIQ húðunin þolir hreinsiefni með ph gildi frá ph2 upp í ph12 og þolir því vel efnaþvotta. Þessi eiginleiki einfaldar einnig þrif á sérstökum óhreinindum sem koma á bílinn eins og trjákvoðu, fuglaskít, flugur, seltu, tjöru- og vatnsbletti.
 
GTECHNIQ Crystal Ceramic lakkhúðun veitir lakkinu meiri dýpt, lit og vernd og viðheldur glansinum og krómhúðunin verndar og dregur fram og viðheldur glansinum. Dagleg þrif verða einfaldari og auðveldari og húðunin tryggir betri endursölu og hærra endursöluverð sem lækkar rekstrarkostnaðinn. Álfelguhúðun einfaldar þrif á felgum, eykur gljáa og endingu og plasthúðunin viðheldur lit plastsins þannig að það gránar síður. Glerhúðun eykur öryggi með því að hrinda frá sér vatni, ís og óhreinindum, öryggi eykst sérstaklega í bleytu og slyddu. Innréttingahúðun verndar áklæði, einfaldar þrif, hindrar að óhreinindi fari niður í sæti, drepur sýkla og heldur innréttingu frískari.

Bókaðu tíma á netinu

Nú getur þú pantað tíma fyrir atvinnutækið þitt í Platinum lakkvernd á netinu. Þú færð svar um hæl og staðfestingu í SMS-i. Þú finnur lausan tíma, bókar tíma eða afbókar. Ef þú vilt frekar sinna erindi þínu í síma hringdu þá í 5109100 og fáðu samband við þjónustuborð.

Bókaðu tíma núna! Viltu senda fyrirspurn smelltu þá hér. Við svörum um hæl.

BÓKA TÍMA

AFBÓKA

 

 

  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 510 9100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sér um þjónustu og sölu fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótótilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara. Vörubíla og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæðis Veltis sér um þjónustu við Volvo atvinnutæki, Renault vörubíla og Hiab hleðslukrana. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, WABCO vagna varahluti, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara. 

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré