Fara í efni  

SKILMÁLAR

Notkunarskilmálar fyrir vefsvæði Veltis: www.veltir.is

Notkun á vefsvæði Veltis, www.veltir.is, er háð eftirfarandi notkunarskilmálum. Vinsamlega kynnið ykkur þá vandlega áður en þið notið vefsvæðið. Með notkun á vefsvæðinu samþykkir þú að vera bundin(n) af þessum notkunarskilmálum.

Takmörkun á afnotum: 
Efnið á vefnum, hvort sem um er að ræða texta, myndir eða annað efni, er í eigu Veltis og verndað af höfundarréttarlögum. Óheimilt er að nota efnið í heild sinni eða að hluta í atvinnuskyni eða til tekjuöflunar en þó er heimilt að vísa í efni á vefnum. Veltir áskilur sér rétt til að banna tilvísanir sem gerðar eru í atvinnuskyni eða tilvísanir sem til þess eru fallnar að kasta rýrð á Velti eða þau vörumerki sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Athygli er vakin á því að öll vörumerki á þessum vef eru skráð vörumerki og er algerlega óheimilt að nota þau, dreifa eða afrita nema með skriflegu leyfi eiganda vörumerkisins.

Efni vefsvæðisins: 
Vefsvæði Veltis inniheldur upplýsingar um þær vörur sem Veltir býður til sölu hér á landi skv. samkomulagi við birgja hverju sinni. Ekki er tryggt að vörur á þessum vef séu ávallt til á lager og í einstaka tilfellum er eingöngu um að ræða að vara sé seld gegn sérpöntun. Veltir og birgjar fyrirtækisins áskilja sér rétt til að breyta vöruframboði án fyrirvara, breyta verði án fyrirvara og breyta búnaði án fyrirvara. Upplýsingarnar á vefsvæðinu eru ekki tæmandi og koma aldrei í stað þeirra upplýsinga sem söluráðgjafar Veltis veita. Veltir leggur áherslu á að upplýsingar á vefsvæðinu séu réttar en afsalar sér ábyrgð á því ef upplýsingar reynast rangar.

Verð á vöru og þjónustu: 
Verð vöru- og þjónustu á vefnum er einungis til viðmiðunar. Upplýsingar um verð, lýsing vöru, staðalbúnaðar og verð aukabúnaðar fela ekki í sér bindandi tilboð af hálfu Veltis. Slíkar upplýsingar kunna að vera úreltar og Veltir beinir því til notanda að sannreyna upplýsingarnar sem fram koma á vefsvæðinu á hverjum tíma hafi hann í hyggju að nýta þær með einhverjum hætti. Verð er ávallt með virðisaukaskatti og getur breyst án fyrirvara og getur verið háð gengi á hverjum tíma en nánar er kveðið á um verðskilmála í kaupsamningi. 

Vernd persónuupplýsinga: 
Veltir mun ekki nota þær persónuupplýsingar sem þú veitir fyrirtækinu í gegnum vefsvæðið til að senda þér upplýsingar eða tilboð ef þú óskar ekki eftir því. Veltir mun ekki undir neinum kringumstæðum selja eða láta þriðja aðila í té umræddar upplýsingar.

Tenging við önnur vefsvæði: 
Veltir ber ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum sem unnt er að tengjast í gegnum vefsvæði Veltis og eru með öllu ótengdir Velti eða þeim birgjum sem Veltir er umboðsaðili fyrir. Jafnframt ber Veltir ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum öðrum sem veita aðang að vefsvæði Veltis.

Takmörkun ábyrgðar: 
Veltir tekur ekki ábyrgð á fjárhagslegu eða ófjárhagslegu tjóni af neinu tagi sem notandi eða aðrir kunna að verða fyrir vegna notkunar á vefsvæðinu. Veltir áskilur sér rétt til að endurskoða þessa skilmála hvenær sem er.

Lögsaga og dómstólar: 
Notkunarskilmálarnir eru háðir íslenskum lögum og íslenskir dómstólar hafa einir lögsögu í ágreiningsmálum sem varða notkunarskilmálana og vefsvæðið.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 510 9100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sér um þjónustu og sölu fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótótilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara. Vörubíla og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæðis Veltis sér um þjónustu við Volvo atvinnutæki, Renault vörubíla og Hiab hleðslukrana. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, WABCO vagna varahluti, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara. 

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré