Flýtilyklar
Volvo vörubílavarahlutir
Varahlutir fyrir Volvo vörubíla
Við hjá Velti bjóðum upp á mikið úrval upprunalegra varahluta fyrir Volvo vörubíla. Sérfræðingar okkar aðstoða þig við að finna rétta hlutinn fyrir bílinn, hvort sem um er að ræða reglulegt viðhald eða viðgerð vegna bilunar.
Við eigum fjölbreytt úrval á lager og útvegum það sem vantar. Ef bíllinn er úr rekstri skaltu láta okkur vita svo við getum kannað möguleika á hraðpöntun og sendingu.
Panta varahluti eða fá verð og lagerstöðu
Hafðu samband í gegnum Góa snjallsvara, sendu tölvupóst á varahlutirh8@veltir.is eða notaðu formið hér fyrir neðan.
Sendu okkur:
-
Bílnúmer eða verksmiðjunúmer og gerð vörubílsins.
-
Lýsingu á varahlutnum, varahlutanúmer eða mynd ef þú hefur það.
-
Upplýsingar um hvort þú vilt panta, fá verð og lagerstöðu eða fylgja eftir pöntun.
-
Nafn, netfang og símanúmer.
-
Kennitölu ef ganga á frá kaupum.
Gefðu upp sölupöntunarnúmer ef fyrirspurnin varðar pöntun sem þegar hefur verið gerð.
Tilkynning þegar pöntunin er tilbúin
Þegar allir varahlutir í pöntuninni eru tilbúnir til afhendingar færðu tilkynningu á netfangið sem er skráð á pöntuninni.
Svaraðu tilkynningunni og láttu okkur vita hvort þú vilt sækja varahlutina eða fá þá senda. Afhendingarstaður og opnunartími koma fram í póstinum.
Ef þegar hefur verið samið um afhendingu skaltu vísa til þess í svarinu.
Afhending, sendingar og greiðsla
Varahlutaþjónustan er á Hádegismóum 8 í Reykjavík, sími 510 9100, og hjá Brimborg við Tryggvabraut 5 á Akureyri, sími 515 7050.
Við bjóðum upp á fría heimsendingu fyrir viðskiptavini með starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum eða Akranesi. Aðrar sendingar eru samkvæmt samkomulagi.
Ef þú vilt fá sent skaltu gefa upp nafn viðtakanda, afhendingarheimilisfang, farsímanúmer og ósk um sendingarleið. Við staðfestum fyrirkomulag og sendingarkostnað, ef við á, áður en sent er.
Þú getur greitt með símgreiðslu eða millifærslu. Reikningsviðskipti eru samkvæmt samningi. Við getum sent greiðsluhlekk ef greiða þarf með korti.

