Flýtilyklar
Volvo rútu varahlutir
Varahlutir fyrir Volvo rútur
Við hjá Velti bjóðum upp á mikið úrval upprunalegra varahluta fyrir Volvo rútur. Sérfræðingar okkar aðstoða þig við að finna réttu hlutina fyrir reglulegt viðhald og viðgerðir.
Við eigum fjölbreytt úrval á lager og útvegum það sem vantar. Ef rútan er úr akstri vegna bilunar skaltu taka það fram svo við getum kannað möguleika á hraðpöntun og sendingu.
Panta varahluti eða fá verð og lagerstöðu
Hafðu samband í gegnum Góa snjallsvara, sendu tölvupóst á varahlutirh8@veltir.is eða notaðu formið hér fyrir neðan.
Sendu okkur:
-
Bílnúmer eða verksmiðjunúmer og gerð rútunnar.
-
Lýsingu á varahlutnum, varahlutanúmer eða mynd ef þú hefur það.
-
Framleiðanda og gerð yfirbyggingar ef fyrirspurnin varðar þann hluta rútunnar.
-
Upplýsingar um hvort þú vilt panta, fá verð og lagerstöðu eða fylgja eftir pöntun.
-
Nafn, netfang og símanúmer.
-
Kennitölu ef ganga á frá kaupum.
Við könnum framboð út frá þeim upplýsingum sem þú sendir. Gefðu upp sölupöntunarnúmer ef þú ert að fylgja eftir pöntun.
Tilkynning þegar pöntunin er tilbúin
Þegar allir varahlutir í pöntuninni eru tilbúnir til afhendingar færðu tilkynningu á netfangið sem er skráð á pöntuninni.
Svaraðu tilkynningunni og láttu okkur vita hvort þú vilt sækja varahlutina eða fá þá senda. Afhendingarstaður og opnunartími koma fram í póstinum.
Ef þegar hefur verið samið um afhendingu skaltu vísa til þess í svarinu.
Afhending, sendingar og greiðsla
Varahlutaþjónustan er á Hádegismóum 8 í Reykjavík, sími 510 9100, og hjá Brimborg við Tryggvabraut 5 á Akureyri, sími 515 7050.
Við bjóðum upp á fría heimsendingu fyrir viðskiptavini með starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum eða Akranesi. Aðrar sendingar eru samkvæmt samkomulagi.
Ef þú vilt fá sent skaltu gefa upp nafn viðtakanda, afhendingarheimilisfang, farsímanúmer og ósk um sendingarleið. Við staðfestum fyrirkomulag og sendingarkostnað, ef við á, áður en sent er.
Þú getur greitt með símgreiðslu eða millifærslu. Reikningsviðskipti eru samkvæmt samningi. Við getum sent greiðsluhlekk ef greiða þarf með korti.

