Flýtilyklar
Volvo Penta varahlutir
Varahlutir fyrir Volvo Penta bátavélar
Við hjá Velti bjóðum upp á mikið úrval upprunalegra varahluta fyrir Volvo Penta bátavélar. Sérfræðingar okkar aðstoða þig við að finna réttu hlutina fyrir viðhald og viðgerðir.
Við eigum fjölbreytt úrval á lager og útvegum það sem vantar. Ef báturinn er frá vegna bilunar skaltu láta okkur vita svo við getum kannað möguleika á hraðpöntun og sendingu.
Panta varahluti eða fá verð og lagerstöðu
Hafðu samband í gegnum Góa snjallsvara, sendu tölvupóst á varahlutirh8@veltir.is eða notaðu formið hér fyrir neðan.
Sendu okkur:
-
Gerð og raðnúmer vélarinnar.
-
Gerð og raðnúmer drifs eða gírs ef erindið varðar þann búnað.
-
Lýsingu á varahlutnum, varahlutanúmer eða mynd ef þú hefur það.
-
Upplýsingar um hvort þú vilt panta, fá verð og lagerstöðu eða fylgja eftir pöntun.
-
Nafn, netfang og símanúmer.
-
Kennitölu ef ganga á frá kaupum.
Mynd af merkiplötu vélar eða búnaðar getur hjálpað okkur að finna rétta hlutinn. Gefðu upp sölupöntunarnúmer ef þú ert að fylgja eftir pöntun.
Tilkynning þegar pöntunin er tilbúin
Þegar allir varahlutir í pöntuninni eru tilbúnir til afhendingar færðu tilkynningu á netfangið sem er skráð á pöntuninni.
Svaraðu tilkynningunni og láttu okkur vita hvort þú vilt sækja varahlutina eða fá þá senda. Afhendingarstaður og opnunartími koma fram í póstinum.
Ef þegar hefur verið samið um afhendingu skaltu vísa til þess í svarinu.
Afhending, sendingar og greiðsla
Varahlutaþjónustan er á Hádegismóum 8 í Reykjavík, sími 510 9100, og hjá Brimborg við Tryggvabraut 5 á Akureyri, sími 515 7050.
Við bjóðum upp á fría heimsendingu fyrir viðskiptavini með starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum eða Akranesi. Aðrar sendingar eru samkvæmt samkomulagi.
Ef senda á varahlutina til hafnar eða á verkstæði skaltu gefa upp nákvæman afhendingarstað, nafn og farsímanúmer viðtakanda. Við staðfestum fyrirkomulag og sendingarkostnað, ef við á, áður en sent er.
Þú getur greitt með símgreiðslu eða millifærslu. Reikningsviðskipti eru samkvæmt samningi. Við getum sent greiðsluhlekk ef greiða þarf með korti.

