Flýtilyklar
Varahlutir hjá Velti
Við hjá Velti útvegum varahluti fyrir Volvo vörubíla, rútur og vinnuvélar, Volvo Penta bátavélar, Renault Trucks vörubíla, HIAB krana, DIECI skotbómulyftara og Steelwrist búnað.
Sérfræðingar okkar aðstoða þig við að finna réttu varahlutina, kanna lagerstöðu og útvega það sem vantar. Varahlutaþjónustan er á Hádegismóum 8 í Reykjavík og hjá Brimborg við Tryggvabraut 5 á Akureyri.
Viltu panta, fá verð og lagerstöðu eða fylgja eftir pöntun? Hafðu samband í gegnum Góa snjallsvara, sendu tölvupóst eða hringdu í okkur.
Upprunalegir varahlutir beint frá framleiðanda
Við leggjum áherslu á upprunalega varahluti og pöntum beint frá framleiðanda. Upprunalegir varahlutir eru hannaðir fyrir viðkomandi tæki og sérfræðingar okkar hjálpa þér að velja réttu hlutina fyrir viðhald og viðgerðir.
Við eigum mikið úrval upprunalegra Volvo varahluta á lager og útvegum einnig varahluti fyrir önnur merki Veltis. Ef hlutur er ekki til könnum við framboð, verð og áætlaðan komutíma.
Er pöntunin þín tilbúin?
Þegar allir varahlutir í pöntuninni eru tilbúnir til afhendingar færðu tilkynningu á netfangið sem er skráð á pöntuninni.
Svaraðu tilkynningunni og láttu okkur vita hvort þú vilt sækja varahlutina eða fá þá senda. Í póstinum kemur fram hvar þú getur sótt pöntunina og hvenær er opið.
Algengar spurningar um afhendingu og greiðslu
Hvar sæki ég varahlutina?
Afhendingarstaður kemur fram í tilkynningunni þinni. Varahlutaafgreiðslurnar eru á eftirfarandi stöðum:
- Hádegismóar 8, Reykjavík: Varahlutaverslun Veltis. Sími 510 9100.
- Tryggvabraut 5, Akureyri: Varahlutaafgreiðsla hjá Brimborg Akureyri. Sími 515 7050.
Athugaðu afhendingarstað og opnunartíma í tilkynningunni áður en þú leggur af stað.
Get ég fengið varahlutina senda?
Já. Svaraðu tilkynningunni og sendu okkur:
- Nafn viðtakanda.
- Afhendingarheimilisfang eða ósk um afhendingarstað.
- Farsímanúmer viðtakanda.
- Ósk um sendingarleið, ef þú hefur ákveðna leið í huga.
Ef senda á varahlutina á vinnusvæði, til hafnar eða á annan stað þar sem þarf sérstakar leiðbeiningar um aðkomu skaltu láta þær fylgja. Við staðfestum fyrirkomulagið áður en sent er.
Er boðið upp á fría heimsendingu?
Við bjóðum upp á fría heimsendingu fyrir viðskiptavini með starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum eða Akranesi.
Láttu okkur vita hvert varahlutirnir eiga að fara. Við staðfestum fyrirkomulag og afhendingartíma.
Hvaða aðrar sendingarleiðir eru í boði?
Eftir stærð sendingar og áfangastað er meðal annars hægt að senda með:
- Dropp.
- Íslandspósti.
- Landflutningum.
- Flytjanda.
- Hraðsendingu með flugi, eftir samkomulagi.
Við aðstoðum þig við að velja sendingarleið sem hentar stærð og þyngd varahlutanna, áfangastað og því hversu fljótt þú þarft á þeim að halda.
Hvað kostar sendingin?
Frí heimsending er í boði á framangreindum svæðum. Kostnaður við aðrar sendingar fer eftir sendingarleið, stærð, þyngd og áfangastað.
Við upplýsum þig um kostnað og fyrirkomulag áður en gengið er frá sendingunni.
Hvernig get ég greitt?
Þú getur greitt með símgreiðslu eða millifærslu. Reikningsviðskipti eru samkvæmt samningi.
Ef greiða þarf fyrir varahlutina eða sendinguna getum við sent þér greiðsluhlekk til að greiða með korti.
Ég hef þegar samið um afhendingu. Þarf ég að svara?
Svaraðu tilkynningunni og vísaðu til þess sem þegar hefur verið ákveðið. Þá getum við staðfest að pöntunin verði afhent samkvæmt samkomulagi.
Hvert sendi ég spurningar um pöntunina?
Svaraðu tölvupóstinum sem þú fékkst um komu varahlutanna. Þannig fylgja upplýsingar um pöntunina erindinu.
Ef þú hefur ekki fengið tilkynningu geturðu haft samband í gegnum Góa, tölvupóst eða síma. Gefðu upp sölupöntunarnúmer ef þú hefur það, annars upplýsingar um tækið og nafn þess sem pantaði.
Panta varahluti eða fá verð og lagerstöðu
Sendu okkur fyrirspurn í gegnum Góa snjallsvara eða tölvupóst á varahlutirh8@veltir.is. Þú getur líka notað fyrirspurnarformið hér fyrir neðan.
Til að finna rétta varahlutinn þurfum við:
- Tegund og gerð bíls, vélar eða búnaðar.
- Bílnúmer, verksmiðjunúmer eða raðnúmer, eftir því sem við á.
- Lýsingu á varahlutnum, helst með varahlutanúmeri eða mynd ef þú hefur það.
- Upplýsingar um hvort þú vilt panta, fá verð og lagerstöðu eða fylgja eftir pöntun.
- Nafn, netfang og símanúmer.
- Kennitölu ef ganga á frá kaupum.
Fyrir krana, bátavélar og annan búnað er gott að láta mynd af merkiplötu fylgja svo við getum auðkennt tækið rétt.
Ef þú ert að panta skaltu einnig láta vita hvort þú vilt sækja varahlutina eða fá þá senda. Gættu þess að netfangið sé rétt svo tilkynning um afhendingu berist þér.
Sérpantanir og hraðsendingar
Ef varahlutur er ekki til á lager könnum við framboð hjá framleiðanda og möguleika á sérpöntun eða hraðsendingu. Við upplýsum þig um verð og áætlaðan komutíma áður en pantað er.
Hraðpantanir eru gerðar í hádeginu á hverjum degi. Fyrir Volvo vörubíla og Volvo Penta berast hraðsendingar yfirleitt daginn eftir pöntun. Sendingar fyrir Volvo vinnuvélar taka að jafnaði tvo daga. Afhendingartími fer eftir lagerstöðu hjá framleiðanda og flutningum.
Við hraðpöntum einnig varahluti og búnað frá HIAB og Steelwrist. Sending með flugi getur verið í boði og vörur borist innan fárra daga, eftir lagerstöðu og flutningum.
Ef bíll, vél eða búnaður er úr notkun vegna bilunar skaltu taka það fram í fyrirspurninni. Þá getum við kannað hvaða pöntunar- og sendingarleið hentar best.

