Fara í efni  

Volvo vinnuvélavarahlutir

Varahlutir fyrir Volvo vinnuvélar

Við hjá Velti bjóðum upp á mikið úrval upprunalegra varahluta fyrir Volvo vinnuvélar. Sérfræðingar okkar aðstoða þig við að finna réttu hlutina fyrir viðhald og viðgerðir á vélinni þinni.

Við eigum fjölbreytt úrval á lager og útvegum það sem vantar. Ef vélin er úr notkun vegna bilunar skaltu taka það fram svo við getum kannað möguleika á hraðpöntun og sendingu.

Panta varahluti eða fá verð og lagerstöðu

Hafðu samband í gegnum Góa snjallsvara, sendu tölvupóst á varahlutirh8@veltir.is eða notaðu formið hér fyrir neðan.

Sendu okkur:

  • Gerð vinnuvélarinnar og verksmiðjunúmer eða raðnúmer.

  • Skráningarnúmer vélarinnar, ef við á.

  • Lýsingu á varahlutnum, varahlutanúmer eða mynd ef þú hefur það.

  • Upplýsingar um hvort þú vilt panta, fá verð og lagerstöðu eða fylgja eftir pöntun.

  • Nafn, netfang og símanúmer.

  • Kennitölu ef ganga á frá kaupum.

Gefðu upp sölupöntunarnúmer ef fyrirspurnin varðar pöntun sem þegar hefur verið gerð.

Tilkynning þegar pöntunin er tilbúin

Þegar allir varahlutir í pöntuninni eru tilbúnir til afhendingar færðu tilkynningu á netfangið sem er skráð á pöntuninni.

Svaraðu tilkynningunni og láttu okkur vita hvort þú vilt sækja varahlutina eða fá þá senda. Afhendingarstaður og opnunartími koma fram í póstinum.

Ef þegar hefur verið samið um afhendingu skaltu vísa til þess í svarinu.

Afhending, sendingar og greiðsla

Varahlutaþjónustan er á Hádegismóum 8 í Reykjavík, sími 510 9100, og hjá Brimborg við Tryggvabraut 5 á Akureyri, sími 515 7050.

Við bjóðum upp á fría heimsendingu fyrir viðskiptavini með starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum eða Akranesi. Aðrar sendingar eru samkvæmt samkomulagi.

Ef senda á varahlutina á vinnusvæði skaltu gefa upp nákvæman afhendingarstað, nafn og farsímanúmer viðtakanda og sérstakar leiðbeiningar um aðkomu. Við staðfestum fyrirkomulag og sendingarkostnað, ef við á, áður en sent er.

Þú getur greitt með símgreiðslu eða millifærslu. Reikningsviðskipti eru samkvæmt samningi. Við getum sent greiðsluhlekk ef greiða þarf með korti.

Panta VARAHLUTI

  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 5109100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vörubílum, rútum (hópferðabílum), vinnuvélum, skotbómulyfturum, hleðslukrönum fyrir vörubíla, eftirvögnum og bátavélum. Veltir býður einnig upp á viðgerðir, varahluti, aukahluti, dekk, dekkjaþjónustu og margvíslegan ábyggingarbúnað fyrir fyrrgreind tæki. Veltir er þjónustu- og söluaðili fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótortilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara.  Vörubíla- og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæði Veltis sér um þjónustu við fyrrgreinda bíla og tæki. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara ásamt því að bjóða upp á hjólastillingar fyrir stóra atvinnubíla.

© Höfundarréttur Veltir  |  Persónuvernd | Skilmálar  |  Veftré