Flýtilyklar
Rafgeymar til sölu fyrir atvinnubíla og tæki
Rafgeymar til sölu fyrir vörubíla, rútur, vinnuvélar og önnur atvinnutæki
Hjá Velti fæst mikið úrval af Exide rafgeymum sem henta vörubílum, rútum, vinnuvélum og öðrum atvinnutækjum. Exide er þekkt fyrir langa endingu og mikinn kraft, sem tryggir öruggt start – jafnvel í frosthörkum. Þar sem fátt er verra en að verða rafmagnslaus á vegum úti er nauðsynlegt að hafa rafgeyminn alltaf í toppstandi.
Rafgeymar og rafgeymaþjónusta fyrir vörubíla, rútur og vinnuvélar
- Frábært, fast verð á rafgeymum.
- Snögg og góð þjónusta fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar og önnur atvinnutæki.
- Framúrskarandi búnaður til þjónustu og viðgerða.
- Endingargóðir og kraftmiklir Exide rafgeymar sem tryggja öruggt start.
- Tölvulestur í boði í leiðinni.
- Skráning þjónustusögu við hverja viðgerð sem eykur endursöluvirði.
- Tímapantanir á netinu, í síma eða með því að renna við – sveigjanlegt, þægilegt og fljótlegt.
- Auðvelt aðkoma, einnig með eftirvagn, og allt á einum stað.
Ending rafgeyma
Rafgeymar hafa fyrirfram ákveðinn líftíma og þarf að fylgjast með ástandi þeirra með reglulegu millibili. Oft gefa gamlir rafgeymar sig þegar kalt er í veðri, en auðvitað geta þeir bilað hvenær sem er ársins.
Ný Carbon Boost tækni frá Exide
Exide hefur framleitt nýja línu af rafgeymum sem kallast Exide Premium Carbon Boost. Þessir nýju rafgeymar hlaða sig helmingi hraðar en fyrri kynslóð þökk sér einkaleyfisvarinni kolefnishúðun á neikvæðu plötu rafgeymisins. Þessi tækni var þróuð við framleiðslu og hönnun AGM og EFB rafgeyma.
Með þessari nýju tækni er hægt að stytta hleðslutímann og um leið leyfir tæknin aukna hleðslu.
Premium Carbon Boost rafgeymar sinna allri þeirri tækjanotkun sem fylgir daglegu lífi, þeir þola vel síendurteknar ræsingar sem tengjast akstri á styttri vegalengdum og eru tilvaldir við þær veðuraðstæður sem geta myndast hér á landi því þeir eru sérhannaður til að þola sveiflur í hitastigi.
Með fjölbreyttari farartækjum og aukinni tækni er mikilvægt að geta treyst á endingargóðan og kraftmikinn rafgeymi. Exide vinnur með mörgum af helstu leiðandi vörumerkjum heimsins og hafa fjárfest fyrir stórar upphæðir í framleiðslu og háþróuðum búnaði. Veltir er stoltur söluaðili Exide rafgeyma.
Hringdu, komdu eða bókaðu tíma á netinu hjá Velti verkstæðum
Þú getur:
- Hringt í síma 510 9100
- Litið við hjá okkur
- Pantað tíma á netinu á verkstæðum Veltis
Við staðfestum tímann með SMS-i og minnum þig á hann fyrirfram. Bókaðu tíma núna eða sendu fyrirspurn með því að smella á hlekkinn hér að neðan – við svörum um hæl.