Fara í efni  

Dieci Apollo-e 26.6 rafmagnsskotbómulyftari gegnir lykilhlutverki við endurvinnslu

Dieci Apollo-e 26.6 rafmagnsskotbómulyftari gegnir lykilhlutverki við endurvinnslu
Dieci Apollo-e 26.6 rafmagnsskotbómulyftari gegnir lykilhlutverki við endurvinnslu

Í heimi úrgangsstýringar og endurvinnslu gegnir Dieci Apollo 26.6 lykilhlutverki við að sameina rekstrarhagkvæmni og umhverfisvænar lausnir. Fyrir fyrirtæki með sjálfbærnistefnu er umhverfisvænni búnaðar, tæki og umbreyting vinnuferla ekki lengur valkostur heldur nauðsyn.

Calabra Maceri e Servici fyrirtækið er meðal fremstu fyrirtækja Ítalíu í endurvinnslu og úrgangsstýringar. Fyrirtækið hefur nýlega endurnýjað vélar sínar og skipt þeim út fyrir umhverfisvænni vélar og þar á meðal tekið inn Dieci Apollo-e 26.6 rafmagnsskotbómulyftara.

Veltir býður nú upp á þrjá gerðir af Dieci rafmagns skotbómulyfturum: Dieci Mini Agri 26.6-e, Dieci Apollo 26.6-e og Mini Agri 20.4-e Smart

Smelltu til að skoða Dieci

Sjálfbærar lausnir til að vernda fólk og umhverfi

Endurvinnslugreinin er ört vaxandi og fleiri og fleiri leitast við að innleiða grænar lausnir í rekstri þar sem mikið magn endurvinnanlegra hráefna er meðhöndlað. Í slíkum aðstæðum, þar sem margar vélar vinna samhliða, er val á sjálfbærum lausnum mikilvægt til að vernda bæði starfsfólk og umhverfi.

Calabra Maceri vinnur með um 950 tonn af úrgangi daglega og þau hafa tekið mörg vistskref ásamt því að rafavæða vélakost sinn þá nota þau endurnýjanlega orku sem þau fá með notkun á sólarsellum í höfuðstöðvum fyrirtækisins. 

Af hverju Dieci Apollo-e 26.6?

Í endurvinnslustöðvum þyrlast gjarnan upp ryk og aðrar agnir og því þótti Calabra Maceri mikilvægt að sporna við því með því að skipta úr dísilvélum í rafmagnsvélar.  Við val á vélunum höfðu þau eftirfarandi atriði í huga: tækin þurftu að vera 100% rafdrifin, losa engan CO2 úrgang, þurftu að skila sömu afköstum, endast jafn vel og vera jafn áreiðanlegar og dísildrifnir forverar þeirra. Til viðbótar við þetta þá lögðu Calabra Maceri mikla áherslu á að tækin væru lipur, ökumannsrými væri rúmgott og varið gegn ryki, tækin þurftu að hafa burðargetu upp á um 2.600 kg., með lyfti hæð á um 6 metra og vera aflmikil. Allt þetta fengu þau í 100% rafmagnsskotbómulyftaranum Dieci Apollo-e 26.6.

Fixed Telehandlers agriculture mini agri e Dieci

Dieci Mini Agri 26.6-e rafmagnsskotbómulyftari 100% rafmagn

Mini Agri 26.6-e rafknúni skotbómulyftarinn sameinar þægindi, styrk og nútímatækni og hentar einstaklega vel í aðstæður þar sem mengunar- og hávaðatakmarkanir eru í fyrirrúmi. Með rafhlöðu sem býður upp á langan vinnslutíma og hleðslumöguleika sem styðja við fjölbreyttan rekstur, býður þessi lyftari upp á bæði framúrskarandi afköst og umhverfisvæna notkun.

Vel búinn, öflugur, lipur og hljóðlátur

Dieci Mini Agri-e rafmagns skotbómulyftarinn er mjög öflugur og sveigjanlegur sem lagar sig vel að flestum verkefnum á hljóðlátan hátt. Rafmagns stýripinni er stiglaus og flæðistýrður (3 hreyfingar samtímis) og hámarkshraði er 24 km / klst og togkraftur er 4.000 daN.

Dieci Mini Agri-e rafmagnsskotbómulyftarinn er mjög vel útbúinn með einu flæðistýrðu joystik fyrir glussastýringu og keyrslu ásamt því að vera vel upplýstur með LED vinnuljósum allan hringinn. Einnig má nefna útvarp með handfrjálsu kerfi (Blue tooth), aukalögnum á bómu, skóflu, 360° gafflalsnúning sóp, bakkmyndavél, glussahraðtengi, loftfjaðrandi sæti ofl. Mini Agri-e er tilvalinn skotbómulyftari fyrir þröng rými þar sem hann er nákvæmur í hreyfingum og mjög meðfærilegur og býður einnig upp á mikið afl. Mini Agri-e er einn sá fyrirferðarminnsti og liprasti í DIECI Agri-línunni, en gefur ekkert eftir hvað varðar kröfur um þægindi og fjölhæfni. Stærð hans gerir hann sérlega hæfan til að vinna í mjög þröngu rými, án þess að fórna ökumannsrými, útsýni eða þægindum ökumanns.

Framúrskarandi raforkuending og hlaðinn eins og rafbíll

Dieci hefur hannað nýja Agri-e rafknúna skotbómulyftarann á einstaklega snjallan hátt til að koma til móts við þarfir mismunandi rekstraraðila um raforkuendingu á vinnudeginum. Aflrásin er 96 volt og skilar miklum afköstum og fær raforkuna frá liþíum (LiFePo4) rafhlöðu. Notendur geta valið um annars vegar einn rafhlöðupakka með afköst upp á 22 kWh/228Ah eða hins vegar tvo rafhlöðupakka með heildarafköst upp á 44 kWh/456Ah. Einstök hönnun Dieci sem framleiðandinn hefur sótt um einkaleyfi á gerir það mögulegt að velja einn rafhlöðupakka í upphafi og sjá hvort það henti í þau verkefni sem lyftarinn er notaður í. Ef útvíkka á verkefni lyftarans og nýta hann enn meira yfir daginn er hægt að panta og bæta við rafhlöðupakka tvö sem tekur stutta stund að setja í lyftarann.

Auðvelt er að auka notkunartíma lyftarans með hleðslu yfir daginn. Hleðslumöguleikar eru margvíslegir og eru rafhlöðupakkarnir með innbyggð 3,3 kW + 3,3 kW hleðslustýringar og eru samskonar og fyrir venjulegan rafbíl, rafsendibíl eða rafvörubíl og geta því nýtt 220V eða 380-400V hleðslutæki sem nýtast til að hlaða í hvíldartíma eða eftir að vinnudegi lýkur. Einnig er hægt er að fá með lyftaranum hraðhleðslustöð sem skilar 28 kW.

Lægri rekstrarkostnaður, engin loftmengun eða losun

Dieci rafmagnsskotbómulyftarar skapa betra vinnuumhverfi með minni titring og minni hávaða og með því að nýta íslenska, græna, raforku veldur lyftarinn engri loftmengun og losar engar gróðurhúsalofttegundir. Með samspili einstakrar orkunýtni rafmótorsins og lágs raforkuverðs á Íslandi lækkar rekstrarkostnaðurinn gríðarlega auk þess sem það sparar tíma að hlaða á staðnum.

Hafðu samband

Hafðu samband við söluráðgjafa okkar í síma 510 9100 eða sendu tölvupóst á salah8@veltir.is. Kíktu í kaffi hjá okkur að Hádegismóum 8 og skoðaðu nýja þjónustumiðstöð okkar.

  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 5109100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vörubílum, rútum (hópferðabílum), vinnuvélum, skotbómulyfturum, hleðslukrönum fyrir vörubíla, eftirvögnum og bátavélum. Veltir býður einnig upp á viðgerðir, varahluti, aukahluti, dekk, dekkjaþjónustu og margvíslegan ábyggingarbúnað fyrir fyrrgreind tæki. Veltir er þjónustu- og söluaðili fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótortilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara Vörubíla- og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæði Veltis sér um þjónustu við fyrrgreinda bíla og tæki. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara ásamt því að bjóða upp á hjólastillingar fyrir stóra atvinnubíla.

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré