Fara í efni  

Ókeypis og snögg hjólamæling fyrir Volvo og Renault atvinnubíla

Ókeypis og snögg hjólamæling fyrir Volvo og Renault atvinnubíla
Ókeypis og snögg hjólamæling fyrir Volvo og Renault atvinnubíla

Við bjóðum nú Volvo og Renault vöru- og flutningabílaeigendum ásamt Volvo rútubílaeigendum ókeypis og snögga hjólamælingu í apríl með afar fullkomnum hjólamælingabúnaði og vel þjálfuðum fagmönnum í hjólamælingu. 

Hjólamæling mikilvæg til að minnka rekstrarkostnað

Hjólamæling atvinnubíla með reglulegu millibili er mjög mikilvæg og gefur mikilvægar upplýsingar um ástand hjólabúnaðar og stýribúnaðar sem honum tengist. Ef ástand þessa búnaðar er ekki eins og best verður á kosið getur það valdið miklu tjóni og kostnaði fyrir eigendur og rekstraraðila atvinnubíla og dregur úr öryggi við akstur.  Því er mikilvægt að nýta sér tilboð um ókeypis hjólamælingu í apríl hjá Velti á Hádegismóum 8 í Árbæ.

Auðvelt aðgengi í hjólamælingu fyrir stóra atvinnubíla

Í nýju húsnæði Veltis að Hádegismóum 8 í Árbæ þar sem er auðvelt aðgengi í hjólamælingu fyrir stóra atvinnubíla og rútur er afar fullkominn hjólamælingabúnaður. Slæmt ástand hjólabúnaðar leiðir til minna öryggis og verri aksturseiginleika, eykur eldsneytiseyðslu og mengun og slítur fljótt dekkjum og getur þannig valdið miklum kostnaði. Fagmenn Veltis hafa fengið sérstaka þjálfun í hjólamælingum og hafa til að bera mikla reynslu. Þeir eru því eldsnöggir að hjólamæla.

Ókeypis hjólamæling hjá Velti er fyrir allar gerðir Volvo og Renault vöru- og flutningabíla og fyrir Volvo rútur.  Nýttu þér einstakt tilboð í apríl og láttu hjólamæla atvinnubílinn þinn ókeypis.

Hjólastilling hjá fagmönnum með besta búnaðinn og mestu reynsluna

Ef í ljós kemur í hjólamælingu að hjóla- og stýrisbúnaður þarfnast lagfæringar þá hafa sérfræðingar strax samband við eiganda atvinnubíls, fara yfir hvað þarfnast lagfæringar og gera tilboð í hjólastillingu með vinnu og varahlutum sem þarf til. Fagmenn Veltis eru vel þjálfaðir og með mikla reynslu í viðgerðum á Volvo og Renault atvinnubílum og Volvo rútum þar sem fullkominn tækjabúnaður til viðgerða er til staðar og allir varahlutir við hendina sem styttir viðgerðartíma. Ekkert mál er að renna við á Hádegismóum 8 þar sem er auðvelt aðgengi fyrir stóra atvinnubíla og rútur.

Hjólamæling og hjólastilling tryggja rétt stillt hjól og stýrisbúnað í fullkomnu standi sem tryggir aukið öryggi, góða aksturseiginleika, minni eldsneytiseyðslu, minni mengun og minna dekkjaslit.

Tryggðu þér ókeypis og snögga hjólamælingu í apríl

Veltir verkstæði Hádegismóum 8 í Árbæ. Ódýr, hröð, fagleg þjónusta við hjólamælingar og hjólastillingar. Renndu við, hringdu í síma 5109160 eða bókaðu á netinu.

BÓKAÐU TÍMA NÚNA


  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 510 9100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sér um þjónustu og sölu fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótótilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara. Vörubíla og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæðis Veltis sér um þjónustu við Volvo atvinnutæki, Renault vörubíla og Hiab hleðslukrana. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, WABCO vagna varahluti, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara. 

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré