Fara í efni  

Opnunarhátíð Veltis um helgina

Sjáðu glæsilega nýja þjónustumiðstöð
Sjáðu glæsilega nýja þjónustumiðstöð

Elskar þú græjur? Komdu á opnunarhátíð glænýrra höfuðstöðva Veltis, Volvo atvinnutækjasviðs Brimborgar, laugardag og sunnudag frá 12-16 að Hádegismóum 8 í Árbæ. Um helgina verður einnig stórsýning á Volvo atvinnubílum og atvinnutækjum. 

Stórglæsileg, vel tækjum búin Volvo þjónustumiðstöð

Glæsilegt nýtt húsnæði Veltis er sérhannað fyrir þjónustu við Volvo atvinnubíla og atvinnutæki með það að markmiði að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini og þægilega aðkomu. Í húsakynnunum er glæsilegasta og best tækjum búna verkstæði landsins ásamt fullkomnu vöruhúsi og bestu mögulegu vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk. Staðsetningin að Hádegismóum 8 er frábær í útjaðri Reykjavíkur þar sem aðgengi frá stofnbrautum er mjög gott og nóg rými utandyra.

Fullkomnar gryfjur og tæknilegur turn

Með nýrri þjónustumiðstöð voru tekin upp ný vöruhúsa- og strikamerkjakerfi ásamt 11 metra háum vöruturni sem gerir allt varahlutaflæði framúrskarandi. Í turninum eru núna um 4.000 vörur og með tímanum skynjar turninn vinsælustu vörurnar og raðar þá hillum með vinsælustu vörunum næst opi turnsins og flýtir þannig fyrir varahlutaflæði.

Á verkstæðinu eru viðgerðagryfjur af fullkomnustu gerð. Ein þeirra er útbúin einum fullkomnasta bremsuprófunarbúnaði sem völ er á markaðnum. Í þessari sömu gryfju eru einnig öflugar hristiplötur sem gera okkur kleift að sjá betur slit í hjólabúnaði vörubifreiða. Kemur þessi búnaður til með að virka vel með fullkomnum hjólastillingarbúnaði sem þjónustumiðstöðin hefur nýlega tekið í notkun.

Veltir Xpress og Frumherji

Í nýrri þjónustumiðstöð Veltis verður auk Volvo umboðsþjónustu: Veltir Xpress, ný hraðþjónusta við atvinnubíla af öllum stærðum þar sem boðið verður upp á smurþjónustu, vagna-og bremsuviðgerðir ásamt dekkjaþjónustu. Fumherji með sérhæfða skoðunarstöð fyrir allar gerðir atvinnubíla.

Komdu um helgina

Opnunarhátíð Veltis og stórsýning á Volvo atvinnubílum og atvinnutækjum er bæði laugardag og sunnudag frá 12-16 að Hádegismóum 8 í Árbæ. Hlökkum til að sjá þig!

Opnunarhátíð


  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 510 9100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sér um þjónustu og sölu fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótótilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara. Vörubíla og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæðis Veltis sér um þjónustu við Volvo atvinnutæki, Renault vörubíla og Hiab hleðslukrana. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, WABCO vagna varahluti, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara. 

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré