Fara í efni  

Þrefalt toppsæti hjá Volvo vörubílum frá Velti

Þrefalt toppsæti hjá Volvo vörubílum frá Velti!
Þrefalt toppsæti hjá Volvo vörubílum frá Velti!

Volvo vörubílar eru þeir vinsælustu á Íslandi árið 2021 og hefur salan aukist meira en 240% það sem af er ári og trónir Volvo í þremur toppsætum á árinu. Volvo vörubílar eru mest seldir á heildarmarkaði vörubíla, mest seldir í flokki vörubíla yfir 16 tonn og Volvo FH16 er mest selda einstaka gerðin. Heildarmarkaður vörubíla er 92 bílar miðað við 62 bíla á sama tíma í fyrra. Markaðurinn er því að vaxa ríflega 48% en sala Volvo vörubíla vex mun meira og því eykst hlutdeild Volvo umtalsvert.

Uppitími skiptir eigendur Volvo vörubíla mestu máli

Ástæðan fyrir framúrskarandi árangri Volvo vörubíla er samspil frábærrar aðstöðu í vel tækjum búinni þjónustumiðstöð Veltis á Hádegismóum 8, einstaklega gott aðgengi fyrir stóra bíla, gæðavörumerki sem er frábært í endursölu og einstök samvinna starfsmanna allra deilda Veltis til að tryggja framúrskarandi þjónustu með allt á einum stað. Starfsmenn og stjórnendur Veltis vita að uppitími atvinnubíla og atvinnutækja er lykilatriði fyrir rekstraraðila og allt starf Veltis hverfist um að tryggja háan uppitíma. Tryggja að atvinnubíllinn og atvinnutækið sé stöðugt í vinnu að afla tekna.

Uppitími ræðst af fjölmörgum þáttum t.d. gæðum bíla og tækja, fáanleika varahluta, verkstæðisaðstöðu og tækjabúnaðar verkstæðis, reynslu og þjálfun starfsmanna, góðri verkstýringu á verkstæði, stuðningi birgja í tæknimálum og hnökralausum ferlum sem studdir eru af öflugu upplýsingatæknikerfi ásamt reynslumiklu og vel þjálfuðu, lausnamiðuðu teymi starfsmanna. Veltisteymið hefur unnið sleitulaust undanfarin þrjú ár að tryggja sífellt betri uppitíma og mun halda því áfram af enn meiri metnaði.

Þessum framúrskarandi árangri var fagnað með ljúffengri súkkulaðiköku.

 


  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 510 9100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sér um þjónustu og sölu fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótótilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara. Vörubíla og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæðis Veltis sér um þjónustu við Volvo atvinnutæki, Renault vörubíla og Hiab hleðslukrana. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, WABCO vagna varahluti, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara. 

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré