Fara í efni  

VELTIR TEKUR VIÐ UMBOÐI DIECI SKOTBÓMULYFTARA

VELTIR TEKUR VIÐ UMBOÐI DIECI SKOTBÓMULYFTARA
VELTIR TEKUR VIÐ UMBOÐI DIECI SKOTBÓMULYFTARA

Veltir, sem er atvinnutækjasvið Brimborgar, hefur nú tekið við sem sölu- og þjónustuaðili fyrir Dieci skotbómulyftara á Íslandi. Dieci hefur áratuga reynslu í framleiðslu á hágæða byggingar- og landbúnaðartækjum síðan 1962 sem hafa reynst afar vel við íslenskar aðstæður.

Dieci skotbómulyftarar og liðstýrðir skotbómulyftarar eru gríðarlega öflugir og hannaðir fyrir mikla notkun við erfiðar aðstæður.

Vinnuaðstaða stjórnenda er hin besta þar sem sýn úr ökumannshúsi er framúrskarandi og mikil áhersla lögð á öryggi tækjanna. Dieci býður breiða línu tækja, yfir 75 gerðir með lyftigetu allt að 23.000 kg og lyftihæð allt að 30 metrar. Aukabúnaður er fáanlegur í miklu úrvali svo sem mannkörfur, kranaspil, kranabómur, sópar og margar gerðir af skóflum sem gerir notin einstaklega fjölbreytt og eykur nýtingu tækjanna.

Í vörulínu Dieci er m.a.

  • Skotbómulyftarar, fjölnota sem henta til lands og sveita, allar stærðir
  • Skotbómulyftarar á snúning, henta í byggingariðnaði t.d sem vinnulyfta, krani eða lyftari
  • Liðstýrðir skotbómulyftarar henta verktakaiðnaði og öllum sem þurfa liðstýrða vinnuvél með skotbómu. Henta vel í mokstur, sem lyftari, fyrir sópa og í snjómokstur
  • Aukabúnaður fáanlegur í miklu úrvali til að auka not og nýtingu

Smelltu og kynntu þér Dieci hjá Velti

Veltir hefur þegar hafið sölu á Dieci skotbómulyfturum og eru fyrstu tækin væntanleg til landsins um mitt sumar en söluráðgjafar Veltis taka vel á móti gömlum og nýjum viðskiptavinum Dieci. Veltir býður þá þjónustu að eldri skotbómulyftarar eru teknir upp í kaup á nýjum. Sala á aukahlutum og fylgibúnaði fyrir Dieci skotbómulyftara er einnig hafin.

Veltir tryggir rekstraröryggi Dieci tækja með framúrskarandi varahluta-, ábyrgðar- og viðgerðarþjónustu

Hjá Velti er öflugur varahlutalager til staðar fyrir Dieci og verkstæði Veltis þjónusta margvísleg atvinnutæki og þar er því til staðar mjög mikil þekking og reynsla á þjónustu við allar gerðir atvinnutækja.

Veltir þjónustar og veitir ábyrgðarþjónustu fyrir Dieci skotbómulyftara og eru verkstæði Veltis búin nýjustu tækjum til viðgerða og þar starfa þaulreyndir starfsmenn með mikla þekkingu sem fá reglulega þjálfun. Aðgengi fyrir stærri tæki er sérlega gott þar sem myndavélavaktað athafnasvæði er rúmgott og stórar stofnbrautir liggja til og frá húsnæðinu. Veltir tryggir auk þess með öflugu þjónustuneti og þjónustubílum framúrskarandi þjónustu á vettvangi hvar sem er á landinu..

Nánari upplýsingar um nýja Dieci skotbómulyftara, varahluti, aukahluti, ábyrgðir og aðra þjónustu má fá hjá Velti t.d. á netspjalli Veltis hér hægra megin niðri á síðunni eða í síma 5109100 eða hjá Dieci sérfræðingum Veltis.


  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 510 9100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sér um þjónustu og sölu fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótótilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara. Vörubíla og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæðis Veltis sér um þjónustu við Volvo atvinnutæki, Renault vörubíla og Hiab hleðslukrana. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, WABCO vagna varahluti, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara. 

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré