Fara í efni  

Volvo kynnir nýja gerð rafmagnsvörubíla með allt að 700 km drægni

Volvo kynnir nýja gerð rafmagnsvörubíla með allt að 700 km drægni
Volvo kynnir nýja gerð rafmagnsvörubíla með allt að 700 km drægni

Volvo Trucks hefur nú kynnt nýja gerð rafmagnsvörubíla sem marka stórt skref í rafvæðingu þungaflutninga. Með þessari nýju lausn er drægnin nú allt að 700 kílómetrrar á einni hleðslu.

Nýr Volvo FH Aero Electric er með aukinni drægni, sem byggir á nýrri e-öxul (e-axle) tækni. Sú lausn skapar meira pláss fyrir rafhlöður og gerir kleift að aka lengri vegalengdir á einni hleðslu. Nýi volvo FH Aero Electric er hannaður fyrir flutninga á lengri leiðum, sem hingað til hefur verið erfiðast að rafvæða. Með MCS (Megawatt Charging System) staðlinum er hægt að hlaða bílinn úr 20% í 80% á um 50 mínútum, sem fellur vel að lögbundnum hvíldartíma ökumanna og eykur nýtingu.

Rafmagnsvörubílalínu Volvo má skoða nánar hér:

Volvo FL Electric 100% rafmagn

Volvo FE Electric 100% rafmagn

Volvo FM Electric 100% rafmagn

Volvo FMX Electric 100% rafmagn

Volvo FH Electric 100% rafmagn

Sérfræðiþekking Veltis og Brimborgar í rafmagns atvinnubílum og atvinnutækjum

Veltir og Brimborg hafa verið í fararbroddi bíla- og tækjaumboða í rafknúnum ökutækjum og lagt mikið í þjálfun starfsmanna og uppbyggingu búnaðar til þjónustu þeirra auk uppbyggingar á hleðsluinnviðum sem henta vörubílum sérstaklega. Það tryggir hátt þjónustustig og framúrskarandi nýtingartíma rafknúinna atvinnubíla.

Samhliða þessu kynnir Volvo Trucks einnig uppfærðar útgáfur af FH, FM og FMX rafmagnsbílunum sem hafa notið mikilla vinsælda hér á landi. Þeir fá nýja drifrás sem eykur sveigjanleika í notkun, bætir aksturseiginleika og gerir kleift að knýja aukabúnað beint frá bílnum. Á sama tíma er drægnin aukin umtalsvert og nemur allt að 470 kílómetrum.

Allir nýju bílarnir eru búnir endurbættum gírkössum sem tryggja mýkri akstur, minni titring og aukin þægindi fyrir ökumenn. Þá er áhersla lögð á að viðhalda sambærilegri framleiðni og með dísilbílum, bæði hvað varðar burðargetu og notkun yfir heilan vinnudag.

Að sögn Volvo er markmiðið að gera fyrirtækjum auðveldara að skipta yfir í rafknúnar lausnir. Fyrirtækið telur að rafmagn muni gegna lykilhlutverki í flutningum framtíðarinnar og stefnir að kolefnishlutleysi árið 2040.

Nýju vörubílarnir verða teknir í notkun í áföngum á alþjóðamörkuðum frá árinu 2026.

  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 5109100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vörubílum, rútum (hópferðabílum), vinnuvélum, skotbómulyfturum, hleðslukrönum fyrir vörubíla, eftirvögnum og bátavélum. Veltir býður einnig upp á viðgerðir, varahluti, aukahluti, dekk, dekkjaþjónustu og margvíslegan ábyggingarbúnað fyrir fyrrgreind tæki. Veltir er þjónustu- og söluaðili fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótortilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara Vörubíla- og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæði Veltis sér um þjónustu við fyrrgreinda bíla og tæki. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara ásamt því að bjóða upp á hjólastillingar fyrir stóra atvinnubíla.

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré