Fara í efni  

VOLVO VÖRUBÍLAR TRÓNA Á SÖLUTOPPNUM 2021 OG VOLVO FH16 MEST SELDA EINSTAKA GERÐIN

Volvo vöru- og flutningabílar tróna á sölutoppnum á Íslandi og Volvo FH16 mest selda einstaka gerðin…
Volvo vöru- og flutningabílar tróna á sölutoppnum á Íslandi og Volvo FH16 mest selda einstaka gerðin 2021

Volvo vöru- og flutningabílar tróna á sölutoppnum á Íslandi og Volvo FH16 mest selda einstaka gerðin

Volvo vöru- og flutningabílar tróna á toppnum á Íslandi árið 2021 með 47 nýja vörubíla yfir 10 tonn, um 177% söluaukningu og 34,1% hlutdeild á vörubílamarkaði yfir 10 tonn. Í flokki vöru- og flutningabíla yfir 16 tonn er Volvo FH16 mest seldi vöru- og flutningabíllinn af einstökum gerðum enda þrautreyndur við íslenskar aðstæður.

Heildarmarkaður fyrir vörubíla yfir 10 tonn árið 2021 var 138 bílar og er það aukning frá sama tíma í fyrra um 45,3%. Sala Volvo vöru- og flutningabíla vex því mun hraðar en markaðurinn og eykur Volvo því hlutdeild sína umtalsvert á vörubílamarkaði.

Efnahagslífið tók hressilega við sér árið 2021 sem skilaði sér í mikilli sölu á atvinnubílum og atvinnutækjum. Mörg verkefni eru komin af stað fyrir næsta ár og horfur góðar. Það hefur leitt til þess að pantanastaða Veltis fyrir árið 2022 fyrir nýja atvinnubíla og atvinnutæki er mjög sterk. Sambland af frábæru starfsfólki, tryggum, kröfuhörðum viðskiptavinum, hágæða atvinnubílum og atvinnutækjum og glæsilegri þjónustumiðstöð þar sem allt er á einum stað tryggir að Vovo vörubílar sitja á toppnum á Íslandi, segir Marteinn Jónsson framkvæmdastjóri Veltis – Volvo atvinnutækjasviðs Brimborgar.

Kynntu þér Volvo vörubíla hjá Velti:

Volvo vörubílar

Með nýrri gerð Volvo vöru- og flutningabíla ásamt framúrskarandi þjónustu í nýrri þjónustumiðstöð Veltis á Hádegismóum hefur eftirspurn eftir Volvo vörubílum aukist mjög og er pantanastaða Veltis á Volvo vörubílum fyrir næsta ár mjög sterk.

Uppitími er meginmarkmið þjónustumiðstöðvar Veltis

Rekstraraðilar vöru- og flutningabíla leggja leggja megináherslu á uppitíma enda skiptir höfuðmáli að atvinnubílar og atvinnutæki séu alltaf til reiðu í vinnu. Framúrskarandi uppitími veltur á fjórum þáttum þ.e. gæðum tækjanna, afkastagetu og tækjabúnaði þjónustumiðstöðvar, framúrskarandi varahlutaþjónustu og þekkingu og reynslu starfsmanna þjónustumiðstöðvar.

Veltir flutti í nýja 4000 fermetra þjónustumiðstöð í lok árs 2018 með þrautreyndan hóp fagmanna þar sem allt er á einum stað með framúrskarandi aðgengi og athafnasvæði. Ný þjónustumiðstöð með besta mögulega tækjabúnaði hefur aukið afkastagetu og tryggt aukna þjónustu, framúrskarandi varahlutaþjónustu og þjónustuframboð sem hefur leitt til forystu á markaði fyrir atvinnbíla og atvinnutæki.

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er umboðsaðili Volvo vörubíla, Volvo vinnuvéla, Volvo rúta og strætisvagna og Volvo Penta bátavéla.

Hafðu samband

Hafðu samband við söluráðgjafa okkar í síma 5109100 eða sendu tölvupóst á salah8@veltir.is. Kíktu í kaffi hjá okkur að Hádegismóum 8, skoðaðu nýjustu tækin og nýja þjónustumiðstöð.

Utforsk funksjonene som gjør Volvo FH16 perfekt for utfordringene dine.


  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 510 9100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sér um þjónustu og sölu fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótótilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara. Vörubíla og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæðis Veltis sér um þjónustu við Volvo atvinnutæki, Renault vörubíla og Hiab hleðslukrana. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, WABCO vagna varahluti, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara. 

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré