Flýtilyklar
Finndu draumastarfið hjá Velti
Laus störf hjá Velti – Komdu í okkar öfluga lið!
Laus störf hjá Velti eru auglýst á ráðningarvefnum Alfreð, en umsóknarferlið sjálft fer fram í gegnum 50Skills. Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan til að skoða laus störf og sækja um.
Ertu að leita að vinnu með skóla endilega sæktu um.? Ertu nemi í bifvélavirkjun og vilt vinna með skólanum til undirbúnings útskriftar og sveinsprófs? Sæktu um. Veltir hefur verið valið fyrirmyndarfyrirtæki í starfsnámi.
✅ Komdu í okkar lið – sæktu um í dag!
Af hverju Veltir?
Veltir sérhæfir sig í sölu og þjónustu á Volvo og Renault vörubílum, Volvo rútum (hópferðabílum), Volvo vinnuvélum, Dieci skotbómulyfturum, Hiab hleðslukrönum fyrir vörubíla, Humus og Reisch eftirvögnum og Volvo Penta bátavélum. Veltir býður einnig upp á viðgerðir, varahluti, aukahluti, dekk, dekkjaþjónustu og margvíslegan ábyggingarbúnað fyrir fyrrgreind tæki.
Við leitum að metnaðarfullu og drífandi starfsfólki sem vill vaxa og þróast með okkur. Veltir er spennandi og fjölbreyttur vinnustaður sem býður upp á frábær tækifæri!
Veltir er í eigu Brimborgar ehf.
Umsóknarferlið – Hvað gerist næst?
- Umsókn er gerð í gegnum Alfreð
- Umsóknir berast í 50Skills
- Staðfesting á móttöku umsóknar berst sjálfkrafa til umsækjanda í tölvupósti
- Valdir umsækjendur fá boð í viðtal
- Svar við umsókn um auglýst starf berst í tölvupósti að ráðningarferli loknu
- Hægt er að senda fyrirspurnir í kjölfar umsóknar í gegnum ráðningarvefinn 50Skills
Ef þú ert að spá í að sækja um, hefur kynnt þér allt um þau lausu störf sem eru í auglýsingu og kynnt þér viðeigandi upplýsingar um Velti en finnur ekki það sem þú leitar að getur þú spurt Góa snjallsvarann okkar sem veit ansi mikið. Ef þú færð ekki svörin sem þú leitar að þá getur þú sent tölvupóst á tölvupóst á mannaudur@brimborg.is.
Viðurkenndur vinnustaður
🏆 Veltir er leiðandi vinnustaður sem státar af eftirfarandi viðurkenningum:
🔹 Vinnustaður í fremstu röð
🔹 Fyrirmyndafyrirtæki í starfsnámi
🔹 Jafnlaunavottun
🔹 Framúrskarandi fyrirtæki
Lestu meira um starfsmannastefnu Brimborgar hér.
Kynntu þér ítarlegar stefnur Brimborgar í starfsmannamálum.
🔹 Stefnur Brimborgar