Fara í efni  

50 ára starfsafmæli Óla Árna

50 ára starfsafmæli Óla Árna
50 ára starfsafmæli Óla Árna
Það var stór dagur þann 17. maí hjá snillingnum Ólafi Árnasyni, sölustjóra Volvo atvinnutækja hjá Velti (Brimborg). Þennan dag árið 1976 fyrir 50 árum fór hann suður til Reykjavíkur 18 ára gamall og hóf starf hjá Velti að þjónusta Volvo. Óli hefur nánast allan þennan tíma unnið að þjónustu og sölu á þessu heimsþekkta vörumerki svo eftir hefur verið tekið hérlendis sem erlendis.
 
Það var mikill fengur fyrir Brimborg að fá Óla í sínar raðir þegar félagið tók við Velti og Volvo árið 1988. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar á þessum tíma, fyrst á Suðurlandsbrautinni hjá Velti, svo á Bíldshöfðanum hjá Brimborg og nú á Hádegismóum og aftur undir merkjum Veltis.
 
Yfirburðaþekking, útsjónarsemi og handlagni hefur einkennt hvaða störf sem Óli hefur tekið sér fyrir hendur og má kannski segja að gamli bíllinn í andyri Veltis á Hádegismóum, sem Óli gerði upp frá grunni, sé einmitt frábært tákn um þessa frábæru eiginleika Óla.
 
Eigendur og samstarfsfólk hjá Brimborg og Velti óska Óla innilega til hamingju með þessi tímamót.
 
 
 
 
 


 
 
 
  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 5109100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vörubílum, rútum (hópferðabílum), vinnuvélum, skotbómulyfturum, hleðslukrönum fyrir vörubíla, eftirvögnum og bátavélum. Veltir býður einnig upp á viðgerðir, varahluti, aukahluti, dekk, dekkjaþjónustu og margvíslegan ábyggingarbúnað fyrir fyrrgreind tæki. Veltir er þjónustu- og söluaðili fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótortilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara Vörubíla- og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæði Veltis sér um þjónustu við fyrrgreinda bíla og tæki. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara ásamt því að bjóða upp á hjólastillingar fyrir stóra atvinnubíla.

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré