Fara í efni  

Alþjóðlegt samstarf sem skilaði dýrmætri reynslu

Alþjóðlegt samstarf sem skilaði dýrmætri reynslu
Alþjóðlegt samstarf sem skilaði dýrmætri reynslu

Þann 21. maí lauk fjögurra vikna starfsþjálfun hjá Velti hjá henni Roosu Takala, nema í bifvélavirkjun frá Keuda í Finnlandi. Hún kom til okkar í gegnum Erasmus+ náms- og þjálfunarverkefni á vegum Iðunnar og hefur dvölin verið bæði lærdómsrík og ánægjuleg fyrir alla sem komu að verkefninu.

Á þessum fjórum vikum tók hún þátt í fjölbreyttum verkefnum hjá okkur, meðal annars:

  • Kúplingsskiptum
  • Hjólastillingum
  • Tjónaviðgerðum
  • Rúðuskiptum
  • Standsetningum
  • Viðgerð á drifi

Það var greinilegt frá fyrsta degi að hún hafði mikinn áhuga á faginu og féll einstaklega vel inn í hópinn okkar. Við hjá Velti leggjum mikla áherslu á gott samstarf, jákvætt vinnuumhverfi og að taka vel á móti nýju fólki og það var gaman að sjá hversu fljótt hún varð hluti af Veltis teyminu.

Roosa sagðist hafa kynnt sér fyrirtækið vel áður en hún kom til Íslands og því hafi ekki margt komið henni á óvart. Það sem vakti þó sérstaka athygli hennar var öflugur lyftubúnaður fyrir vörubíla og krana sem auðveldar vinnu með þunga hluti, ásamt því hversu mikið af sérverkfærum við búum að og notum í daglegri vinnu.

Markmið starfsþjálfunarinnar var að efla verklega færni hennar enn frekar, sérstaklega á sviði viðhalds vörubíla. Verkefnið reyndist ekki síður verðmætt fyrir okkur hjá Velti, þar sem það gaf okkur tækifæri til að kynnast nýjum sjónarhornum, miðla þekkingu okkar áfram og styrkja alþjóðleg tengsl fyrirtækisins.

Auk vinnunnar naut hún þess að skoða íslenska náttúru eftir vinnu og um helgar og var afar hrifin af landinu og dvölinni hér.

Við viljum færa henni, starfsfólki okkar og öllum sem komu að verkefninu okkar bestu þakkir fyrir frábært samstarf og samvinnu á þessum fjórum vikum. Við hvetjum jafnframt fyrirtæki og einstaklinga til að taka þátt í svona samstarfsverkefnum þegar tækifæri gefst, þau skapa dýrmæta reynslu, tengsl og nýja sýn fyrir alla aðila.

  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 5109100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vörubílum, rútum (hópferðabílum), vinnuvélum, skotbómulyfturum, hleðslukrönum fyrir vörubíla, eftirvögnum og bátavélum. Veltir býður einnig upp á viðgerðir, varahluti, aukahluti, dekk, dekkjaþjónustu og margvíslegan ábyggingarbúnað fyrir fyrrgreind tæki. Veltir er þjónustu- og söluaðili fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótortilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara Vörubíla- og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæði Veltis sér um þjónustu við fyrrgreinda bíla og tæki. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara ásamt því að bjóða upp á hjólastillingar fyrir stóra atvinnubíla.

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré