Fara í efni  

Dieci kynnir nýjung, DTS (Dieci Telematics System), sem er snjallt fjarvöktunarkerfi fyrir Diei skotbómulyftara

Dieci kynnir nýjung, DTS (Dieci Telematics System)
Dieci kynnir nýjung, DTS (Dieci Telematics System)

Dieci kynnir nýjung, DTS (Dieci Telematics System), sem er snjallt fjarvöktunarkerfi fyrir Diei skotbómulyftara. Kerfið gerir eigendum kleift að fylgjast með tækjum sínum í rauntíma í gegnum vefgátt eða snjallforrit. Þú getur fylgst meðal annars með staðsetningu, vinnustundum, eldsneytisstöðu og viðhaldsupplýsingum.

Frá og með 2026 verður DTS staðalbúnaður í öllum Dieci skotbómulyfturum. Með hverjum keyptum nýjum Dieci skotbómulyftara fylgir 36 mánaða áskrift að kerfinu án aukakostnaðar ásamt 3 ára ábyrgð frá framleiðanda.

Kerfið býður einnig upp á fjarviðhald, bilanagreiningu, viðhaldsaðvaranir og öryggislausnir á borð við „geofencing“ og þjófavörn. Með DTS styrkir Dieci þjónustu sína enn frekar og einfaldar rekstur og eftirlit með vélaflotum fyrir viðskiptavini sína.

Skoðaðu Dieci skotbómulyftara

Hafðu samband

Hafðu samband við söluráðgjafa okkar í síma 5109102 til að fá nánari upplýsingar eða sendu okkur tölvupóst á johannri@veltir.is

  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 5109100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vörubílum, rútum (hópferðabílum), vinnuvélum, skotbómulyfturum, hleðslukrönum fyrir vörubíla, eftirvögnum og bátavélum. Veltir býður einnig upp á viðgerðir, varahluti, aukahluti, dekk, dekkjaþjónustu og margvíslegan ábyggingarbúnað fyrir fyrrgreind tæki. Veltir er þjónustu- og söluaðili fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótortilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara Vörubíla- og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæði Veltis sér um þjónustu við fyrrgreinda bíla og tæki. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara ásamt því að bjóða upp á hjólastillingar fyrir stóra atvinnubíla.

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré