Flýtilyklar
Dieci rafknúinn skotbómulyftari til Steypustöðvarinnar
Það var stór dagur hjá Velti | Dieci á Íslandi þegar Steypustöðin tók nýverið við tveimur öflugum skotbómulyfturum frá ítalska framleiðandanum Dieci. Afhendingin markaði tímamót þar sem annar lyftaranna, Dieci Mini Agri 26.6-e, er fyrsti 100% rafmagns skotbómulyftarinn sem afhentur hefur verið hér á landi. Með því undirstrikar Steypustöðin framsækna sýn sína í umhverfismálum og skrefin sem fyrirtækið er að taka í átt að sjálfbærari lausnum í sinni starfsemi.
Kynntu þér Dieci skotbómulyftara
Dieci Mini Agri 26-e rafmagnsskotbómulyftari 100% rafmagn
Mini Agri 26.6-e rafknúni skotbómulyftarinn sameinar þægindi, styrk og nútímatækni og hentar einstaklega vel í aðstæður þar sem mengunar- og hávaðatakmarkanir eru í fyrirrúmi. Með rafhlöðu sem býður upp á langan vinnslutíma og hleðslumöguleika sem styðja við fjölbreyttan rekstur, býður þessi lyftari upp á bæði framúrskarandi afköst og umhverfisvæna notkun.
Vel búinn, öflugur, lipur og hljóðlátur
Steypustöðin valdi Dieci Mini Agri-e rafmagns skotbómulyftara því hann er mjög öflugur og sveigjanlegur sem lagar sig vel að flestum verkefnum á hljóðlátan hátt. Rafmagns stýripinni er stiglaus og flæðistýrður (3 hreyfingar samtímis) og hámarkshraði er 24 km / klst og togkraftur er 4.000 daN.
Dieci Mini Agri-e rafmagnsskotbómulyftarinn er mjög vel útbúinn með einu flæðistýrðu joystik fyrir glussastýringu og keyrslu ásamt því að vera vel upplýstur með LED vinnuljósum allan hringinn. Einnig má nefna útvarp með handfrjálsu kerfi (Blue tooth), aukalögnum á bómu, skóflu, 360° gafflalsnúning sóp, bakkmyndavél, glussahraðtengi, loftfjaðrandi sæti ofl. Mini Agri-e er tilvalinn skotbómulyftari fyrir þröng rými þar sem hann er nákvæmur í hreyfingum og mjög meðfærilegur og býður einnig upp á mikið afl. Mini Agri-e er einn sá fyrirferðarminnsti og liprasti í DIECI Agri-línunni, en gefur ekkert eftir hvað varðar kröfur um þægindi og fjölhæfni. Stærð hans gerir hann sérlega hæfan til að vinna í mjög þröngu rými, án þess að fórna ökumannsrými, útsýni eða þægindum ökumanns.
Framúrskarandi raforkuending og hlaðinn eins og rafbíll
Dieci hefur hannað nýja Agri-e rafknúna skotbómulyftarann á einstaklega snjallan hátt til að koma til móts við þarfir mismunandi rekstraraðila um raforkuendingu á vinnudeginum. Aflrásin er 96 volt og skilar miklum afköstum og fær raforkuna frá liþíum (LiFePo4) rafhlöðu. Notendur geta valið um annars vegar einn rafhlöðupakka með afköst upp á 22 kWh/228Ah eða hins vegar tvo rafhlöðupakka með heildarafköst upp á 44 kWh/456Ah. Einstök hönnun Dieci sem framleiðandinn hefur sótt um einkaleyfi á gerir það mögulegt að velja einn rafhlöðupakka í upphafi og sjá hvort það henti í þau verkefni sem lyftarinn er notaður í. Ef útvíkka á verkefni lyftarans og nýta hann enn meira yfir daginn er hægt að panta og bæta við rafhlöðupakka tvö sem tekur stutta stund að setja í lyftarann.
Auðvelt er að auka notkunartíma lyftarans með hleðslu yfir daginn. Hleðslumöguleikar eru margvíslegir og eru rafhlöðupakkarnir með innbyggð 3,2 kW + 3,2 kW hleðslustýringar og eru samskonar og fyrir venjulegan rafbíl, rafsendibíl eða rafvörubíl og geta því nýtt 220V eða 380-400V hleðslutæki sem nýtast til að hlaða í hvíldartíma eða eftir að vinnudegi lýkur. Einnig er hægt er að fá með lyftaranum hraðhleðslustöð sem skilar 28 kW.
Lægri rekstrarkostnaður, engin loftmengun eða losun
Dieci rafmagnsskotbómulyftarar skapa betra vinnuumhverfi með minni titring og minni hávaða og með því að nýta íslenska, græna, raforku veldur lyftarinn engri loftmengun og losar engar gróðurhúsalofttegundir. Með samspili einstakrar orkunýtni rafmótorsins og lágs raforkuverðs á Íslandi lækkar rekstrarkostnaðurinn gríðarlega auk þess sem það sparar tíma að hlaða á staðnum.
Dieci Agri Max 75.10 skotbómulyftari
Hinn lyftarinn sem afhentur var er Dieci Agri Max 75.10, eitt af stærstu og öflugustu tækjum Dieci fyrir kröfuharðan iðnað. Hann kemur með fjölbreytilegum búnaði og háþróaðri tækni sem tryggir bæði öryggi og afköst við erfiðar aðstæður.
Bæði tækin voru afhent af Vélti, umboðsaðila Dieci á Íslandi, sem hefur lagt áherslu á að bjóða upp á hágæðatæki sem uppfylla nútímakröfur bæði um afköst og umhverfisáhrif. Með þessum kaupum staðfestir Steypustöðin að fyrirtækið er á meðal þeirra fyrstu á landinu til að taka upp rafknúnar lausnir í flutningi og meðhöndlun efnis á byggingarsvæðum.
Hafðu samband
Hafðu samband við söluráðgjafa okkar í síma 510 9100 eða sendu tölvupóst á salah8@veltir.is. Kíktu í kaffi hjá okkur að Hádegismóum 8 og skoðaðu nýja þjónustumiðstöð okkar.